Saga Stefáns Mána, Ódáðahraun, er frábært hráefni í spennumynd og það veit fagfólkið hjá SagaFilm sem á dögunum tryggði sér kvikmyndaréttinn á bókinni. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að Ragnar Agnarsson yrði leikstjóri myndarinnar og þeir Stefán myndu að öllum líkindum skrifa handritið saman. Óðinn R. Elsuson, aðalpersóna sögunnar, er þó ekki fundinn ennþá en það komst í fréttirnar nýlega að leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefði verið ráðinn til að leika aðra söguhetju úr smiðju Stefáns Mána, Stebba Psycho, aðalpersónuna í sögunni Svartur á leik. Framleiðslufyrirtækin ZikZak og Filmus standa að gerð myndar eftir þeirri bók og hefjast tökur hennar innan tíðar. Kvikmyndaunnendur og aðdáendur Stefáns Mána eiga því von á góðu – þeir geta líka stytt sér biðina með því að lesa allra nýjustu bók Mána, Hyldýpi sem er dulúðug spennusaga af allra bestu gerð.