Viltu spjalla við Þorgrím?

Á heimasíðu sinni, www.andi.is, birtir Þorgrímur Þráinsson fyrstu fimm kaflana í nýju bókinni sinni, núll núll 9. Þar geta aðdáendurnir líka nálgast ýmsar upplýsingar um þennan vinsæla rithöfund og síðast en ekki síst spurt hann um allt sem þá fýsir að vita. Þorgrímur hefur meðal annars verið spurður að því hvort framhald verði á nýju bókinni og gefur hann því undir fótinn, ef góð hugmynd skjóti upp kollinum.

Núll núll 9 er þriðja bókin um Jóel og vini hans og stefnir eins og fyrri bækurnar, Svalasta 7an og Undir 4 augu, á metsölusæti þegar jólabókasalan verður gerð upp.

Þorgrímur Þráinsson mun árita bækur sínar í Eymundsson í Kringlunni á laugardaginn, milli 14-15. Endilega kíkið við!

INNskráning

Nýskráning