Bókin Kodulinna ingel, sem Íslendingar þekkja betur undir titlinum Engill í vesturbænum, í eistneskri þýðingu Toomas Lapp, hlaut á dögunum viðurkenningu Eistlandsdeildar IBBY. Viðurkenningin er veitt erlendum barnabókahöfundi, þýðanda og útgefanda – öllum í senn – og er tilgangurinn að hvetja til útgáfu erlendra barnabóka á eistnesku.
Höfundur bókarinnar, Kristín Steinsdóttir, var í Eistlandi þegar viðurkenningin var tilkynnt og höfðu gestgjafar hennar í miðstöð barnabókmennta í Tallinn og Norrænu upplýsingaskrifstofunnar í Eistlandi útbúið veglega dagskrá í tilefni dagsins.
Eistland er sjöunda landið sem Engill í vesturbænum kemur út í og hún hefur víða hlotið virt verðlaun. Þrjár íslenskar barnabækur hafa áður komið út á eistnesku: Eddukvæði ætluð börnum sem gefin voru út árið 1924, Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason (2001) og Allt um tröll eftir Brian Pilkington (2006).