Rithöfundinum Andra Snæ Magnasyni hlotnaðist í dag sá skemmtilegi heiður að vinna tvöfalt til „Verðlauna verðlaunanna“. Þau hlýtur hann fyrir bækurnar Draumalandið og Söguna af Bláa hnettinum sem báðar hafa hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin. Félag íslenskra bókaútgefenda efndi til kosninga um bestu bækurnar sem hlotið hafa þau verðlaun síðustu tvo áratugi og var kosið á milli þeirra fjölmörgu góðu bóka á vefnum Mbl.is. Nú þegar niðurstaðan liggur fyrir er ekki annað hægt að en að óska höfundinum margfalt til hamingju með árangurinn!
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna verða kynntar síðdegis í dag.