Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010 voru kynntar í dag en fyrir valinu þetta árið urðu skáldsögurnar Ofsi eftir Einar Kárason og Konur eftir Steinar Braga. Verðlaunahafinn verður valinn á fundi dómnefndar í Helsinki 29.-30. mars nk.
Verðlaunin hafa verið veitt allt frá árinu 1962, þau eru veitt fyrir fagurbókmenntir sem ritaðar eru á norrænu tungumáli. Það geta verið skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk. Markmið verðlaunanna er að auka áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og tungumáli nágrannalandanna og á sameiginlegri menningararfleifð Norðurlanda. Verðlaunin í fyrra hlaut norski rithöfundurinn Per Petterson.
Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum og verða þau afhent í byrjun nóvember 2010 á 62. Norðurlandaráðsþingi sem haldið verður í Reykjavík.
Nánar má fræðast um verðlaunin hér.