Brot af því besta á Súfistanum

Rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn, Viktor Arnar Ingólfsson, Guðmundur Brynjólfsson, Ragna Sigurðardóttir og Páll Valsson munu lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum á Súfistakvöldi nk. fimmtudagskvöld. Það verður notaleg stemmning á Laugavegi 18 þar sem kaffihúsið í Bókabúð Máls og menningar verður undirlagt í eina kvöldstund.

Dagskráin hefst kl. 20 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Lesið verður úr eftirfarandi bókum:

Alltaf sama sagan – Þórarinn Eldjárn
Sólstjakar – Viktor Arnar Ingólfsson
Hið fullkomna landslag – Ragna Sigurðardóttir
Vigdís – Kona verður forseti – Páll Valsson


INNskráning

Nýskráning