Karlsvagn Kristínar Marju

Þegar Gunnur vaknar að morgni uppgötvar hún að þjófar hafa farið ránshendi um hús hennar meðan hún svaf. Í uppnámi ákveður hún að leita öryggis í sumarbústað sínum fyrir austan fjall en neyðist á síðustu stundu til að taka með sér erfiðan gest. Hvað geta virtur geðlæknir og óöguð unglingsstúlka gert sér til afþreyingar á afskekktum stað í frosti og snjó? Þær geta til dæmis heimsótt hús minninganna og beitt ímyndunaraflinu, tækinu sem hefur skilið manninn frá dýrunum frá upphafi vega …

Þó að Karlsvagninn gerist á aðeins þrem dögum fer sagan vítt um í tíma og rúmi og bregður óvæntu ljósi á mannlegt eðli og áhrif uppeldisins. Þeir fjölmörgu sem heilluðust af sögu Krístínar Marju um listakonuna Karitas fá hér enn að kynnast ógleymanlegum persónum og lífssögum þeirra.


„Við höfum öll gott af að lesa Karlsvagninn, karlar ekki síður en konur.”
Ingvi Þór Kormáksson / bokmenntir.is

„…frábær bók…“
Jenný Anna Baldursdóttir, bókabloggari

INNskráning

Nýskráning