Hallgrímur fær frábæra dóma í Danmörku

10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp kom út á dönsku á dögunum, undir heitinu: Lejemorderens guide til et smukt hjem. Ellen Boen þýddi og Lindhardt og Ringhof gefur út. Bókin hefur fengið frábæra dóma í dönskum fjölmiðlum. ”Underholdende gangsterkomedie” og ”Barok humor og storhed” hljóma fyrirsagnir. Politiken gaf henni fjórar stjörnur og Jyllandsposten fimm stjörnur. Í sjónvarpi sagði menningarritstjóri Jyllandsposten hana eina af tveimur bestu bókum haustsins. Salan hefur einnig farið vel af stað og seldust 1.500 eintök af henni á fyrstu tveimur vikunum. Bókin er líka gefin út sem hljóðbók og nýlega valdi Danska ríkisútvarpið hana í hóp Podcast-bóka sinna.

„Hallgrímur Helgason er rithöfundur af guðs náð, skemmtilegur og liggur mikið á hjarta.“
MetroXpress

****
„Bókin er ekki eins stór í sniðum og tvær síðustu bækur [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][Hallgríms], Höfundur Íslands og Rokland, en skemmtileg er hún.“
Politiken

*****
„Líkt og í Roklandi sér hann Ísland með augum ótrúverðugrar og ekki lítið hlægilegrar persónu, og það er mjög skemmtilegt að fylgjast með menningarlegum árekstrum milli hins austur-evrópska morðingja og hinna guðhræddu Íslendinga. Smám saman verður hún … einnig raunveruleg, mjög uppbyggileg og hlý saga …“
Jyllandsposten

„Með venjulegum og áhrifaríkum stíl nær Hallgrímur Helgason að láta okkur finna til með ógeðfelldri aðalpersónunni.“
Kristeligt Dagblad

[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning