Í bókinni Lubbi finnur málbein eru íslensku málhljóðin í brennidepli. Þessi nýstárlega bók kemur út í næstu viku. Sama dag verður haldið námskeið fyrir þá sem vilja kynna sér hana, bæði sem kennslutæki og sér til fróðleiks og skemmtunar.
Bókin um Lubba er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára. Höfundar bókarinnar, Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir, eru talmeinafræðingar og hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna. Í bókinni nýtist sérfræðiþekking þeirra bæði börnum sem glíma við erfiðleika í máltöku og hinum sem læra málið án vandkvæða. Efnið stuðlar einnig að auðugri orðaforða og ýtir undir skýrari framburð.
Í bókinni er sérhvert málhljóð er kynnt með stuttri sögu, skemmtilegri vísu eftir Þórarin Eldjárn og glæsilegum myndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur. Á diski sem fylgir bókinni syngja börn úr Skólakór Kársness allar vísurnar við alþekkt lög.
Námskeið með yfirskriftinni „Hljóðanám barna í öndvegi – ný nálgun“ verður haldið á Hótel Loftleiðum, miðvikudaginn 21. október kl. 13.00-16.00. Námskeiðið er opið öllu fag- og áhugafólki um máltöku barna í víðum skilningi.
Námskeiðsgjald 1.000 kr. (kaffi og gögn innifalin)
Upplýsingar og skráning: forlagid@forlagid.is