Risaeðlur í Reykjavík: bernskubrek Ævars vísindamanns #1
990 kr. – 3.390 kr.
[ti_wishlists_addtowishlist]
Um bókina
Áður en Ævar varð vísindamaður var hann bara venjulegur strákur … eða kannski ekki alveg venjulegur. Hann langaði til dæmis ekkert að eiga vini og talaði helst ekki við neinn nema köttinn sinn, hann Einstein. En á ellefu ára afmælisdaginn hans breyttist allt!
Risaeðlur í Reykjavík er æsispennandi saga fyrir lesendur á öllum aldri. Hér segir frá sjö bandóðum risaeðlum, stórhættulegum unglingi, gagnsemi skotbolta, strætóbílstjóra í lífshættu og heimsins bestu félögum. Bókin er prentuð í sérstöku letri sem gerir lesblindum auðveldara með að lesa hana.
Teikningar eru eftir Rán Flygenring.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 48 mínútur að lengd. Höfundur les.
























3 reviews for Risaeðlur í Reykjavík: bernskubrek Ævars vísindamanns #1
Eldar –
„Stíll höfundar er frjálslegur og skemmtilegur og bókin er mjög fyndin. Sagan fjallar bæði um ánægju þess að eignast nýja vini og hversu skemmtilegt það er að ala upp risaeðlu í svefnherberginu sínu.“
Rökstuðningur dómnefndar In Other Words verðlaunanna, tilnefning
Bjarni Guðmarsson –
„Risaeðlur í Reykjavík er ótrúlega skemmtileg, fyndin og ævintýraleg bók.“
Ólafur Valur Ólafsson/Vikan
Bjarni Guðmarsson –
„Þessi bók er eins og ópal. Hún bætir, hressir og kætir.“
Gerður Kristný