Nýr vinur

220 kr. – 790 kr.

Nýr vinur
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Ég er nýflutt til Barcelona og þekki engan fyrir utan samstarfsfólk mitt á nýja vinnustaðnum mínum. Það voru þau sem sögðu mér af almenningslauginni. Þar er maður að synda skriðsund. Ég sting mér ofan í og opna augun. Maðurinn er vöðvastæltur og stinnur. Rassvöðvarnir spennast þegar hann slær fótunum í vatninu. Ég kem upp á yfirborðið aftur og gríp annarri hendi í bakkann. Þegar maðurinn syndir í áttina frá mér renni ég hendinni niður á milli fótanna á mér. Meðan hann fer fyrstu ferðina nudda ég mig utan yfir sundfötin. Þegar hann er kominn af stað í aðra umferð smeygi ég fingrunum inn undir. Ég finn hvað mér hitnar. Ég nudda hraðar, roðna í framan og akkúrat þegar ég er að fara að fá það, snarstoppar hann. Hann horfir beint á mig frá hinum enda laugarinnar. Ég stirðna með hendina milli fóta. Hafði hann tekið eftir því hvað ég var að gera?

Saga þessi er gefin út í samvinnu við sænska kvikmyndaframleiðandann Eriku Lust. Markmið hennar er að miðla mannlegu eðli og fjölbreytni þess í gegnum öflugar, ástríðufullar sögur af nánum kynnum, girnd og ást.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 15 mínútur að lengd. Sara Dalmar les.

Tengdar bækur

Sjóræningja Jenný
Fylgdarsveinninn
Minningar um þig
Rauði demanturinn
Spænska sumarið
Tinder-leigubílinn
Leikur með herra X
Einn handlaginn og aðrar erótískar smásögur
Sundlaugardrengurinn og níu aðrar erótískar smásögur
Á valdi herra míns
Borðaðu með mér
Legið á gægjum

INNskráning

Nýskráning