Indriði G. Þorsteinsson

79 af stöðinni lofuð og tilnefnd til bókmenntaverðlauna

Þýskir gagnrýnendur spara ekki stóru orðin í dómum sínum um bók Indriða G. Þorsteinssonar, 79 af stöðinni, sem kom út í Þýskalandi fyrr á þessu ári í þýðingu Betty Wahl. Hver af öðrum lofa þeir knappan stíl skáldsins, hins „íslenska Hemingway“ eins og einn blaðamaðurinn orðar það. Bókinni er hrósað fyrir glæsilegan prósa og meitlaðar samræður og höfundur lofaður fyrir nákvæmni, skerpu og sálfræðilegt innsæi. Bókin er kölluð „myrk gersemi“ á vefmiðlinum Readux.net og talin hápunktur á útgáfu þeirra íslensku bóka sem koma út á þýsku í tengslum við þátttöku Íslands sem heiðursgestur á bókasýningunni í Frankfurt í haust.

Miðað við allt lofið kemur ekki á óvart að bókin er tilnefnd til bókmenntaverðlauna óháðra forlaga í Þýskalandi. Kosið er um bókina í opinni netkosningu þannig að Íslendingar fá tækifæri til að kjósa sinn fulltrúa, TAXI 79 AB STATION, eins og hún kallast á þýsku. Smellið hér til að kjósa.


INNskráning

Nýskráning