Börnin í Dimmuvík hefur greinilega haft gríðarleg áhrif á Kolbrúnu Bergþórsdóttur því hún eys hana lofi í dálknum Orðanna hljóðan í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Kolbrún bendir á að ekki er alltaf samræmi milli bestu bókanna og vinsælustu bókanna og tekur Börnin í Dimmuvík sem dæmi þar: „Metsölulistar sýna hvað er vinsælast þá stundina en þeir sýna ekki endilega það besta. Ef þeir sýndu það besta sem kæmi út hverju sinni þá væri bók Jóns Atla Jónassonar, Börnin í Dimmuvík, ofarlega á metsölulista.“ Kolbrún kemur líka inn á áhrifamátt textans og minnir á hversu mikilvægt er að geta lesið og lifað sig inn í texta: „Sagan er einnig dæmi um það þegar rithöfundi tekst að hreyfa við lesendum sínum og fær þá til að finna til. Kannski er til sá íslenski lesandi sem ekki finnur til með persónum og óblíðum örlögum þeirra þegar hann les bók Jóns Atla. Ef svo er þá vorkenni ég honum nokkuð. Það er vont að lesa og geta ekki lifað sig inn í gott skáldverk.“ Greinin um helgina var þó ekki í fyrsta sinn sem Kolbrún skrifar um verkið í Morgunblaðið því hún hafði áður fjallað um hana og sagði þá: „Sagan er stutt en hnitmiðuð og mögnuð“. Það er því ljóst að Börnin í Dimmuvík er saga sem situr í lesanda sínum.