Borist hefur njósn af því að Ha-Joon Chang, höfundur bókarinnar 23 atriði um kapítalisma sem ekki er sagt frá, sé á lista Prospect Magazine yfir hugsuðu heimsins. Listinn mun birtast í maíhefti tímaritsins og aðdáendur Ha-Joons og bókar hans geta kosið hann með því að smella hér. Ha-Joon Chang notar víðtæka þekkingu sína á efnahagssögu heimsins og skilning á því hvernig ólík efnahagskerfi virka um víða veröld til að benda á hugmyndir og leiðir til að gera samfélög betri og jöfnuðinn meiri. Þess vegna er gott að sjá hann á þessum lista.
Bókin 23 atriði um kapítalisma sem ekki er sagt frá kom út hjá Forlaginu í fyrra. Hún hefur nú verið seld til þrjátíu landa og höfundurinn er eftirsóttur víða um heim. Meðal annars er hann fyrirlesari við Háskólann í Cambridge, dálkahöfundur við Guardian og ráðgjafi Sameinuðu þjóðanna og ýmissa ríkisstjórna og stjórnmálaflokka.
Ha-Joon Chang fæddist árið 1963 í Suður-Kóreu. Hann er sérfræðingur í þróunarhagfræði og dósent í stjórnmálahagfræði þróunarlanda við Háskólann í Cambridge. Hann hefur ritað nokkrar bækur og fjölda greina um hagfræði, bæði fræðilegar og á léttari nótum.