Strandir, ný ljóðabók Gerðar Kristnýjar, fékk fjögurra stjörnu dóm í Fréttablaðinu í dag og var umsögnin afar áhrifamikil.
Friðrika Benónýsdóttir ritar dóminn og segir Gerði Kristnýju vera meðal okkar albestu skálda. Hún segir ennfremur ljóðin bera sterk höfundareinkenni Gerðar Kristnýjar; knappt form, sparleg orðnotkun, sterkt myndmál, óvænt vending og kíminn undirtónn þótt undiraldan sé allra jafna þung.
Friðrika segir ljóðabálkinn Skautaferð hafa haft sterkustu áhrifin á sig. „Þar er sögð saga af togstreitu, missi, sorg og eftirsjá í myndmáli sem tæpast á sinn líka í íslenskri ljóðahefð … Nístandi kvölin smýgur í merg og bein lesandans, hár rísa og tár falla. Áhrifin eru í senn ógnvænleg og undurfögur og sterkari en ég minnist frá lestri nokkurs annars texta.“
Áhrifamikil umsögn um bók sem ætti ekki að láta nokkurn mann ósnortinn.