Skipið hans Stefáns Mána kom nýlega út í Ástralíu en það er mikill stökkpallur fyrir íslenska rithöfunda að verk þeirra séu gefin út á enskri tungu. Nú þegar hefur birst dómur um Skipið í áströlsku dagblaði og þar er sagt að Stefán Máni nái að halda óvissu og spennu út bókina. Einnig er sagt að bókin sé níhílísk og grípandi nútímaútgáfa af hinni frægu sögu The Ship of Fools.