Kex Hostel og Sæmundur í sparifötunum eru léttir yfir jólin og halda áfram með ljúfa og fallega menningardagskrá í desembermánuði í samstarfi við Kimi Records og Bókabúð Máls og Menningar.
Á fimmtudagskvöld, 15. desember, mun Hallgrímur Helgason lesa upp úr bók sinni Konan við 1000° og hefst upplesturinn kl. 20:00. Á eftir Hallgrími stígur hljómsveitin Nolo á stokk og leikur lög af nýrri plötu sinni.
Aðgangur að dagskrá KEXMAS 2011 er án endurgjalds og dagskrána er að finna á heimasíðu Kex Hostel.