Andri Snær

Blái hnötturinn á fjölunum í Sviss

Í gær var leiksýningin Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason frumsýnd í Luzerner Theater í Sviss og verður leikritið sýnt fram í janúar. Þetta er ekki fyrsta skipti sem leikrit Andra Snæs er sýnt í leikhúsum erlendis en það hefur verið sýnt í Kanada, Finnlandi og Pakistan í stórum leikhúsum þar í landi. Leikritið vann einnig til verðlauna hér á landi og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 við miklar vinsældir.

Bókin Sagan af Bláa hnettinum kom fyrst út árið 1999 og hefur hún verið margverðlaunuð. Til að mynda hlaut bókin Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 og „Verðlaun verðlaunanna“ árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin er ein víðförlasta barnabók síðari ára en hún er m.a. komin út í Kína, Japan, Grikklandi, Tælandi og Kóreu auk fjölmargra Evrópulanda.

INNskráning

Nýskráning