höfundar II

Annað Bókakonfektið

Við höldum ótrauð áfram með Bókakonfektið – upplestrarkvöld Forlagsins á Café Rosenberg. Síðastliðið mánudagskvöld var stappfullt hús og rífandi stemmning og þarf ekki að efa að svo verði áfram. Annað upplestrakvöldið verður næsta sunnudag, 6. nóvember, og hefst kl. 20.30.

Að þessu sinni lesa eftirfarandi höfundar úr verkum sínum: Þórarinn Leifsson les úr Götumálaranum, Ármann Jakobsson úr Glæsi og Ólafur Gunnarsson úr Meistaraverkinu og fleiri sögum. Guðrún Eva Mínervudóttir lesu úr Allt með kossi vekur, Þórarinn Eldjárn úr Hávamálum, Gerður Kristný úr Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf, Sigrún Eldjárn úr Náttúrugripasafninu og Þorsteinn frá Hamri úr Allt kom það nær.

Bókakonfekt – upplestrarkvöld Forlagsins er hnossgæti fyrir líkama og sál og fátt betra en að stíga upp frá amstri daganna, bragða á jólakonfektinu, dreypa á ljúfum drykk og hlýða á brot af því besta úr jólaútgáfunni. Bækurnar eru til sölu á staðnum og upplagt að nota tækifærið til að fá höfunda til að árita. Aðgangur er ókeypis – og fyrstu hundrað gestirnir fá drykk í boði Forlagsins.

INNskráning

Nýskráning