Á dögunum var dregið í happdrætti kiljuklúbbsins Uglunnar. Einn heppinn félagi fékk flugmiða frá Iceland Express, báðar leiðir, á einn áfangastað flugfélagsins. Óskar Arason var dreginn út af fjölda áskrifenda og var hann mjög ánægður með þennan óvænta ávinning þess að vera Uglufélagi.
Félagar í kiljuklúbbnum Uglunni fá sendar tvær vandaðar skáldsögur heim til sín, sex sinnum á ári, og fá tvær kiljur á verði einnar og fría heimsendingu.
Hér eru nánari upplýsingar um hina fjölbreyttu bókaklúbba Forlagsins.