Ungur öryggisráðgjafi hjá sænska ríkislögreglustjóraembættinu tók sig til einn daginn og skrifaði hörkugóðan krimma sem lesendur víða um heim hafa tekið fagnandi. Skáldkonan Kristina Ohlsson er rétt rúmlega þrítug en fyrsta bók hennar, Utangarðsbörn, er nýkomin út í þýðingu Jóns Daníelssonar. Þar greinir frá dularfullu barnshvarfi, reyndir lögreglumenn eru sannfærðir um að faðir barnsins sé valdur að hvarfi þess en Fredrika Bergmann er ekki jafnviss. Brátt kemur í ljós að annað og myrkara býr að baki en forræðisdeila og rannsókn lögreglunnar verður að vonlitlu kapphlaupi við tímann …