Sigrún Pálsdóttir var á dögunum tilnefnd til Hinna íslensku bókmenntaverðlauna fyrir bók sína Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar og bókin hefur hlotið glæsilegar viðtökur. Að hana dreymdi litla um að verða geimfari og að hún varð eitt sinn afar lúpuleg í tölfræðitíma í Oxford er meðal þess sem lesa má í bráðskemmtilegri yfirheyrslu yfir Sigrúnu á Miðjunni. Þar segir hún frá því sem drífur hana áfram við skriftirnar, hvað henni líkar best og verst í eigin fari og hvernig hún hagar vinnudeginum – og fjölmargt fleira. Viðtalið er að finna á midjan.is.