Sunday Times í London hefur valið Hreinsun eftir Sofi Oksanen eina af bestu bókum ársins 2010.
Í greininni sem John Dugdale skrifar segir m.a.: „Árið hefur verið firnagott glæpasagnaár en þar ber Sofi Oksaen af með bók sína Hreinsun. Þetta er algerlega einstæð fjölskyldusaga sem stefnir saman ungri stúlku á flótta undan kynlífsþrælasölum og gamalli eistneskri konu sem sveik systur sína í hendur Rússa hálfri öld áður. Morð, kynferðislegt ofbeldi og pólitísk saga Evrópu fléttast saman og setja Sofi Oksanen í fremstu röð glæpasagnahöfunda.“