Nýtt ljóðasafn Sigurðar Pálssonar

Eldri ljóðabækur hins margverðlaunaða skálds og rithöfundar, Sigurðar Pálssonar, hafa verið ófáanlegar um árabil. Loksins verður hægt að nálgast þær í bókabúðum á ný því þær koma nú út í röð safnbóka frá Forlaginu.  Í Ljóðlínusafni, sem er sú nýjasta, eru saman komnar ljóðabækurnar Ljóðlínudans, Ljóðlínuskip og Ljóðlínuspil.

Ljóðlínusafn er þriðja ljóðasafn Sigurðar en áður hafa hafa komið út Ljóðvegasafn (Ljóð vega salt, Ljóð vega menn og Ljóð vega gerð) og Ljóðnámusafn (Ljóð námu land, Ljóð námu menn og Ljóð námu völd).

Sigurður  er fæddur  á Skinnastað 1948. Hann er leikhúsfræðingur að mennt, rithöfundur og þýðandi að starfi. Hann er í fremstu röð íslenskra ljóðskálda, prósahöfunda og leikskálda, fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók sína og Grímuverðlaun fyrir leikverkið Utan gátta. Ljóðabækur hans eru fjórtán talsins.

Smelltu hér til að kaupa Ljóðlínusafn.

INNskráning

Nýskráning