Í morgun var dregið í lestrarátaki Ævars vísindamanns, sem stóð frá 1. janúar til 1. mars. Eftir talningu á innsendum lestrarmiðum kom í ljós að um 54 þúsund bækur voru lesnar í átakinu, en allir krakkar í 1. til 7. bekk máttu taka þátt.
Þátttaka í átakinu var framar öllum vonum, stærstur hluti gunnskóla landsins sendi inn lestrarmiða, sem og Gladsaxeskóli í Danmörku þar sem íslenskir krakkar stunda nám. Krakkarnir sem dregnir voru úr lestrarátakspottinum eru í Grunnskólanum í Sandgerði, Laugarnesskóla í Reykjavík, Hörðuvallaskóla í Kópavogi, Árskóla á Sauðárkróki og Hríseyjarskóla. Þau fá það í verðlaun að vera gerð að persónum í stórhættulegri ævintýrabók, Bernskubrek Ævars vísindamanns: Vélmennaárásin, sem kemur út í apríl.
Í fyrra voru rúmlega 60 þúsund bækur lesnar á fjórum mánuðum í sama átaki , sem þýðir að tæpar 115 þúsund bækur hafa nú verið lesnar í lestrarátökum Ævars. Lestrátak Ævars vísindamanns er hugarfóstur Ævars Þórs Benediktssonar, unnið þetta árið í samstarfi við Forlagið, Landsbankann, Ibby, Sorpu, 123Skóla, Menntamálastofnun, Odda, RÚV, Ikea og Heimili og skóla.