Hallgrímur Helgason

101 Hallgrímur

Laugardaginn 21. apríl, kl. 13:30-16:00, verður haldið ritþing með Hallgrími Helgasyni í Gerðbergi.

Þorgerður E. Sigurðardóttir mun stjórna ritþinginu og Páll Valsson og Alda Björk Valdimarsdóttir munu spyrja Hallgrím um verk hans. Einnig mun Hallgrímur lesa upp stutt brot úr verkum sínum og Ragnheiður Gröndal syngur nokkur lög. Strax að loknu ritþingi opnar sýning Hallgríms Myndveiðitímabilið 2012 á neðri hæð Gerðubergs.

Allir velkomnir!


INNskráning

Nýskráning