E. L. James

100 milljón eintök á 100 vikum

Þríleikur E. L. James sem hófst með 50 gráum skuggum hefur nú selst í 100 milljón eintökum á heimsvísu á þeim 100 vikum sem liðnar eru frá frumútgáfu bókarinnar. Ekki nóg með það heldur hefur 50 gráir skugga nú setið 100 vikur á metsölulista New York Times.

Bækurnar þrjár; 50 gráir skuggar, 50 dekkri skuggar og 50 skuggar frelsis; hafa nú verið þýddar á 51 tungumál og þar á meðal íslensku. Bækurnar nutu gríðarlega vinsælda þegar þær komu út hér á landi, og gera enn, en þó er ná þó líklegast aldrei sömu vinsældum og í Bandaríkjunum þar sem, þegar mest lét, seldust tvö eintök á sekúndu.

Þrátt fyrir að nærri tvö ár séu liðin frá útgáfu upphafi þríleiksins seljast bækurnar enn í bílförmum um allan heim.

Ef þú átt enn eftir að lesa þær er aldrei of seint að byrja!

INNskráning

Nýskráning