Arnaldur Indridason

1. nóvember

Flestir bókaunnendur vita hvað ‘1. nóvember’ táknar: nefnilega útgáfudag nýjustu bókar Arnaldar Indriðasonar. Nú er sem sagt komin út nýjasta afurð sagnameistarans, spennusagan Einvígið sem eins og nafnið ber með sér hefur sem sögusvið árið 1972 þegar allt hverfist um heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskys í Reykjavík. Á taflborði heimsins takast risaveldin í austri og vestri á í ísköldu stríði. En fleiri einvígi fara fram í Reykjavík þessi dægrin og Marion Briem einsetur sér að komast til botns í sérlega fólskulegri líkamsárás.
Við óskum Arnaldi til hamingju með bókina – starfsfólk Forlagsins er í óða önn að koma Einvíginu í bókabúðir og hafa víst ekki undan. En landsmenn geta sökkt sér í lesturinn.

INNskráning

Nýskráning