Bjarg

„Skemmtileg og grípandi“

Ljóðabókin Bjarg eftir Sigurlín Bjarney Gísladóttur sem kom út í vor hefur fengið falleg orð úr tveim áttum í vikunni. Fyrst kom út nýtt hefti af menningartímaritinu Spássíunni þar sem Auður Aðalsteinsdóttir skrifar langa og ítarlega grein um bókina. Hún segir meðal annars: „Þessi ljóðabók er þeirrar náttúru að vera skemmtileg og grípandi við fyrsta lestur en fela jafnframt í sér margar litlar sögur, vísanir og myndir sem koma kvörnunum af stað, svo hægt er að eyða löngum stundum í að lesa hana aftur og grufla yfir einstaka atriðum.“ Henni finnst ljóðin vera „iðandi af lífi, óvæntum uppákomum og háska, ekki ósvipað syllum í fuglabjargi“ og sama megi segja um form blokkarinnar, „þar iðar allt af óvæntu lífi: Veggur grætur, eftir gólfum skríða tilfinningar, svalir eru fullar af von, frygð seytlar milli veggja og angist drýpur úr lofti –“ Og Auður lýkur máli sínu á þessum orðum: „… ég held bara, svei mér þá, að Sigurlín Bjarney sé eitt af skemmtilegustu skáldunum um þessar mundir.“

Í Víðsjá í gær talaði svo Ingi Björn Guðnason um Bjarg og gaf henni sömuleiðis fín meðmæli: „Þegar á heildina er litið er óhætt að segja að Bjarg sé heilsteypt og vel heppnuð ljóðabók. Sú áhugaverða grunnhugmynd sem liggur að baki þessari bók, að nota form byggingar til að ákvarða form ljóðabókar, er vel heppnuð … Heildarsvipur verksins er sterkur og gerir þessa bók að nokkuð merkilegri tilraun hvað varðar tengsl forms og innihalds.“

INNskráning

Nýskráning