Stefán Máni

„Sálfræðitryllir af bestu gerð“ fær Tindabikkjuna

Stefán Máni hefur hlotið Tindabikkjuna fyrir bók sína Húsið. Tindabikkjan er verðlaun Glæpafélags Vestfjarða og er veitt fyrir bestu íslensku glæpasöguna á hverju ári. Einnig hlaut Stefán Máni viðurkenningu fyrir „Mesta illmennið“ sem er Teddi í Húsinu.

Umsögn dómnefndar um Húsið:

„Húsið er snilldarlega vel skrifuð glæpasaga. Það er spennandi að fylgjast með hinum vestfirska Herði Grímssyni sem við kynntumst svo vel í Feigð, baráttu hans við volduga andstæðinga, innra sem ytra og það er undarlega auðvelt að þykja vænt um hann þó hann geti verið durtur.  Illmennið Teódór er það andstyggilegasta sem ratað hefur á blaðsíður íslenskra glæpasagna. Í hvert sinn er hann birtist á blaðsíðum bókarinnar risu hárin og má með sanni segja að Teddi hafi strokið okkur andhæris.

Húsið er sálfræðitryllir af bestu gerð og gætu einhverjir miklað fyrir sér að ráðast í 600 síðurnar sem bókin fyllir. Hún heldur alla leið og hver kafli styður við næsta í að flétta saman þessa svakalegu glæpasögu.“

INNskráning

Nýskráning