Sigurganga Arnaldar Indriðasonar í Frakklandi heldur áfram og er bók hans Svörtuloft nú í efsta sæti franska glæpasagnalistans og í öðru sæti á heildarlistanum. Glæpasagan Svörtuloft er því önnur mest selda bókin í gervöllu Frakklandi! Svörtuloft komu út hjá Éditions Métailié fyrir ári, í þýðingu Eric Boury og hjá vasabrotsforlaginu Points fyrir nokkrum dögum.
Skemmst er frá því að segja að Arnaldur trónir á toppi glæpasagnalistans en að auki eru þrjár aðrar bækur hans á listanum, Bettý, Furðustrandir og Harðskafi. Bókin er í öðru sæti heildarlistans sem teljast verður glæsilegur árangur. Points kynnir bókina með svohljóðandi orðum: Le maître du polar est islandais Le nouveau roman d’Indridason en poche sem í íslenskri þýðingu útleggst: „Meistari glæpasögunnar er íslenskur – ný bók Arnaldar Indriðasonar, í vasabroti.“
Bækur Arnaldar njóta gríðarlegra vinsælda í Frakklandi og virðist ekkert lát á. Arnaldur heldur utan í vikunni og tekur þátt í alþjóðlegu bóka- og kvikmyndahátíðinni Étonnant voyageurs í Saint Malo en hún hefur verið haldin frá 1990. Hana sækja um 60.000 gestir og á dagskrá eru um 300 atburðir með þátttöku þekktra rithöfunda og kvikmyndaleikstjóra. (Sjá slóð: http://www.etonnants-voyageurs.com/ .)
Nýjasta bók Arnaldar, Reykjavíkurnætur, er nýkomin út í kilju hérlendis. Bókin var mest selda bók síðustu jólavertíðar og hefur þegar verið seld til Frakklands, auk Bretlands, Þýskalands, Hollands og Svíþjóðar.