Þórarinn Eldjárn hlaut í gær Sögusteininn – bókmenntaverðlaun IBBY á Íslandi. Í niðurlagi greinargerðar dómnefndar segir: „Enginn verðskuldar betur nafnbótina Listaskáld barnanna en Þórarinn Eldjárn og það er okkur mikill heiður og gleði að veita honum Sögusteininn fyrir árið 2013.“
Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti Þórarni verðlaunin og gerði það í nafni afa og amma sem njóta þess að lesa barnaljóð Þórarins fyrir barnabörnin. Kynnir samkomunnar, Arndís Þórarinsdóttir formaður IBBY á Íslandi, var einnig persónuleg þegar hún talaði til Þórarins og sagði að foreldri leikskólabarns sem þyrfti að hlusta á sama málþroskaefnið aftur og aftur þakkaði það innilega að vísurnar þar væru eftir jafnlipurt og skemmtilegt skáld og Þórarin Eldjárn. Sjálfur þakkaði Þórarinn fyrir sig með ljóði úr bók sinni Grannmeti og átvextir:
Stafkrókur í orði á síðu í bók á borði
Inni á miðju bókasafni er borð
og bók á því, í henni miðri er síða.
Mitt á þeirri síðu er óþekkt orð,
í orðinu miðju stafur til að þýða.
Ef af stafnum þeim í þessu orði
á þeirri síðu í nefndri bók
tekst ykkur að þýða á þessu borði
í þessu safni jafnvel minnsta krók
gengur ykkur allt að bestu vonum.
Um að gera að byrja að leita að honum.
Verðlaunin eru 500.000 krónur, auk verðlaunagrips til eignar, en þau eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir. Í dómnefnd að þessu sinni sátu Brynja Baldursdóttir, íslenskufræðingur og kennari, Dagný Kristjánsdóttir, prófessor og Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur og myndlistarmaður.
Sögusteinn var fyrst afhentur árið 2007. Áður hafa Sigrún Eldjárn, Kristín Steinsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Ragnheiður Gestsdóttir fengið Sögustein IBBY.