Björg Magnúsdóttir

„Fáið mér karlmenn …“

Fjöldi manns samfagnaði með með Björgu Magnúsdóttur þegar fyrsta bók hennar, Ekki þessi týpa, kom út í gær. Útgáfuhófið var haldið á Loftinu sem troðfylltist af fólki sem langaði að kynna sér þessa glaðlegu og fjörugu bók. Systir, frænka og vinur höfundarins lásu þrjá safaríka kafla úr bókinni auk þess sem Björg fylgdi henni úr garði með einlægri ræðu. Þar hvatti hún fólk til að láta drauma sína rætast og þakkaði vinum og kunningjum innilega fyrir þeirra framlag til bókarinnar. Veislustjóri sagði síðar – í hálfkæringi þó – að einhverjir vinir höfundarins íhuguðu að krefjast lögbanns á bókina þar sem í henni væru ýmis óþægileg leyndarmál afhjúpuð en Björg dregur ekki dul á það að allar neyðarlegar uppákomur sem sagt er frá í bókinni hafi gerst í raun og veru og séu ekki einu sinni mikið ýktar!

Vel á annað hundrað bækur seldust á staðnum og sat höfundur við í góða tvo klukkutíma við að árita þær á meðan DJ-arnir Bakkelsi héldu uppi fjörinu og gestir gæddu sér á Sommersby eplacider og Tuborg bjór. Þó tók hún sér hlé til að syngja tvö lög með kórnum sínum, Kvennakónum Kötlu. Annað þeirra var óskalag höfundarins: Hraustir menn eftir Jakob Jóhannesson Smára og Sigmund Romberg, og sungu skvísurnar með tilþrifum: „Fá mér þá alla, sem aldreigi hallast, / en æ láta sverfa til stáls. / Fáið mér karlmenn, sem kunna að falla / í krafti hins réttláta máls.

Litrík kápan á Ekki þessi týpa hefur svo væntanlega skreytt náttborð um borg og bý í nótt með bókamerki á mismunandi stöðum.


INNskráning

Nýskráning