Anna Lilja Þórisdóttir gefur Skýrslu 64 eftir Jussi Adler Olsen fjórar stjörnur í Morgunblaðinu í dag og sparar ekki lofsyrðin: „Skýrsla 64 er fjórða bók hins danska Jussi Adler-Olsen um Carl Mørck og félaga í Deild Q. Eins og þær fyrri er hér á ferð spennusaga í algerum sérflokki sem fékk bókmenntaverðlaunin Gyllta lárberið árið 2010 í Danmörku.“
Gagnrýnandinn rekur söguþráðinn og greinir helstu söguhetjur og segir síðan: „Danir hafa, líkt og við, þurft að horfast í augu við það á undanförnum árum að ýmsu var ábótavant á árum áður í úrræðum fyrir þá sem minna máttu sín, misþyrmingar og ill meðferð átti sér stað á dönskum vistheimilum af ýmsum toga líkt og hér á landi. Það sem hér er fjallað um er því síður en svo framandi. Adler-Olsen er óhræddur við að beita sterkum félagslegum tóni, án þess þó að vera vandlætingarsamur, í bland við spennu, hrylling, kaldhæðni og vel ofna fléttu og útkoman er mögnuð, æsispennandi og afar óhugnanleg saga.“ Þýðandinn fær einnig rós í sitt hnappagat: „Bókin er vel þýdd af Jóni St. Kristjánssyni, undirrituð las hana fyrst á dönsku og fær ekki betur séð en að Jóni takist vel að ná stemningu Adlers-Olsens.“