„Engin helgisaga“

Einar Sigurbjörnsson prófessor í trúfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands fjallar ítarlega um nýjustu bók Steinunnar Jóhannesdóttur, Heimanfylgju, í pistli sem birtist á trú.is. Þar segir Einar m.a.: „Skáldsagan Heimanfylgja er mjög læsileg bók og full ástæða bæði til að vekja athygli á henni og óska höfundi til hamingju. Stíll höfundar er léttur og góður og hefur Steinunn mikið innsæi í atburði og persónur. Ýmislegt getur að sjálfsögðu orkað tvímælis en ekki svo að það veki hneykslun. Frágangur bókarinnar er mjög góður og allur til fyrirmyndar. Skreytingin á kápu og titilsíðu vekur strax athygli enda byggist hún á verki Guðbrands sjálfs.“

Sjá nánar á trú.is.

INNskráning

Nýskráning