Stefán Máni hefur fengið frábæra dóma fyrir skáldsögu sína Húsið. Gagnrýnendur eru bæði hrifnir af persónum bókarinnar sem og spennandi söguþræði.
Friðrika Benónýsdóttir sagði Húsið vera eina af bestu íslensku glæpasögum ársins og að glæponinn væri flottur og löggan enn flottari.
Í kiljunni í síðustu viku tóku Kolbrún og Sigurður í sama streng. Kolbrún sagði illmenni sögunnar magnað og var hún svo spennt við lestur bókarinnar að hún kíkti aftast – sem hún annars gerir aldrei. Þau voru bæði sammála um að svona spennandi og skemmtileg bók væri ekki blaðsíðu of löng og endaði Kolbrún umfjöllunina með orðunum „Bók sem rígheldur og maður verður skelfingu lostinn!“
Þannig að þeir sem vilja alvöru spennu og trylling í jólapakkann geta treyst á Húsið – og skriðið undir sæng með Stefáni Mána.