Jón Gnarr fékk mikið lof í Kiljunni í gær fyrir Sjóræningjann, annað bindi skáldævisögu sinnar sem kom út fyrir jól. „Að mínu mati er þetta ein merkilegasta bókin sem kom út á síðasta ári,“ sagði Kolbrún Bergþórsdóttir. „Það voru margar mjög vel gerðar… en þegar kemur að áhrifamætti stingur Jón Gnarr eiginlega alla aðra af. … Þar sem Jón Gnarr á í hlut þá er hann fyndinn en hann er ekkert að leggja upp úr fyndninni, hann er að leggja upp úr einlægninni og hann er að lýsa þarna andstyggilegu einelti sem hann varð fyrir.“ Kolbrúnu finnst einsýnt að lesa þessa bók í öllum unglingaskólum því unglingar eigi skilyrðislaust að lesa hana – og fullorðnir líka: „Mér finnst hún einfaldlega frábær!“
Sigurður Valgeirsson varð hrifnastur af pönksögunni sem hann sá í bókinni því í vanda sínum og einsemd fær Jón helst skjól í samfélagi pönkara á Hlemmi. Sigurði fannst stíllinn jafnvel minna á Þórberg, málið létt og ljóst, og er þar ekki leiðum að líkjast. Kolbrún ítrekaði að henni fyndist Jón eiga hrós skilið fyrir að miðla söguefninu, því svona bók geti hjálpað mjög mörgum. Og hún endaði skörulega: „Ég hvet alla til að lesa þessa bók.“
Egill Helgason hlýddi á hrósið með elskulegu glotti og tók umræðurnar saman á sinn hátt: „Hann er dáldið sení, hann Jón!“