„Afar áhugaverð skáldsaga“

Ein þeirra góðu bóka sem hafa vakið litla athygli í flóðinu fær loksins í dag verðuga umsögn í Morgunblaðinu. Þar skrifar Einar Falur um Skáldsögu um Jón eftir Ófeig Sigurðsson, og segir meðal annars:

„Að ytra byrði er form Skáldsögunnar um Jón harla hefðbundið; þetta er bréfaskáldsaga, bréf sem Jón ritar Þórunni konu sinni norður í Skagafjörð. Hann liggur undir grun um að hafa myrt fyrrum eiginmann Þórunnar og hefur hrökklast í annan landsfjórðung þar sem móttökur eru æði ónotalegar; Katla er tekin að gjósa með tilheyrandi flóðum og ösku sem liggur þykk yfir landinu … En þótt bréfaskáldsagan með sínum játningum og uppljóstrunum þess, sem segir  frá, sé býsna hefðbundið form að ytra byrði, tekst Ófeigi að gera það að sínu og lætur það þjóna söguefninu á persónulegan og frumlegan hátt. … Jón sögunnar er hugsjónamaður, sonur upplýsingarinnar, og glímir á stundum við þungar hugsanir og hverfur í heima drauma og fantasíu. Höfundurinn hikar aldrei við að taka söguna sínum tökum; hún er skrifuð á 21. öldinni og þótt hann freisti þess að glepja lesandann með því að skrifa að vissu leyti með tungutaki þeirrar 18., á athyglisverðan hátt, þá blandar hann samtímanum líka oft á írónískan hátt inn í frásögnina.“

Að lokum segir Einar Falur að þetta sé „afar áhugaverð skáldsaga, frumleg og heilsteypt. Saman við aldarfarslýsinguna blandar höfundur fljúgandi fantasíu. Hann rýnir jafnt í huga sem umhverfi, stekkur frá umræðum um sekt og sakleysi yfir í lýsingar á yfirferð óvætta og fólks sem hvergi býr nema í þjóðsögunum, án þess að missa sjónar á Jóni þar sem hann situr í sínum helli og býr í haginn fyrir fjölskylduna.”

INNskráning

Nýskráning