Jón Yngvi Jóhannsson

„… að öllu leyti mjög vel heppnað verk“

Landnám, ævisaga Gunnars Gunnarssonar, eftir Jón Yngva Jóhannsson hefur fengið mikið lof gagnrýnenda. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut nýlega Bókmenntaverðlaun bóksala sem önnur besta ævisaga ársins.

Fjallað var um bókina í síðasta þætti Kiljunnar og voru allir viðmælendur ánægðir með stórvirkið sem er upp á rúmlega 500 blaðsíður. Páll Baldvin fagnaði því að ævisaga Gunnars Gunnarssonar væri komin út enda „að öllu leyti mjög vel heppnað verk, vandlega unnið og fallega frá gengið.“ Kolbrún var hrifin af því hvernig Jóni Yngva tekst að sýna alla bresti Gunnars; hégómagirni hans, sjálfhverfu og að geta ekki sett sig í spor annarra. Kolbrún sagði það „sjaldgæft að lesa íslenska ævisögu þar sem höfundur er ekki að dæma [Gunnar] en sýnir alla þessa miklu galla hans.“ Einnig var hún hrifin af því að Jón Yngvi er óhræddur við að mótmæla túlkunum annarra fræðimanna á verkum Gunnars og kemur með ný sjónarmið.

Það eru fleiri en Kiljuliðar sem hafa heillast af verkinu. Skafti Þ. Halldórsson gaf bókinni fjóra og hálfa stjörnu í Morgunblaðinu á dögunum og segir bókina yfirgripsmikla og nærfærna. Einnig segir hann bókina unna af „vandvirkni og gagnrýnni hugsun og [veita] okkur góða innsýn í ævi Gunnars og höfundarverk.“

Glæsileg bók sem fjölmargir yrðu ánægðir með að fá í jólapakkann í ár.




INNskráning

Nýskráning