Halldór Laxness

„… þvílík saga sem hann skrifaði, Íslendingurinn.“

Skáldsaga Halldórs Laxness, Sjálfstætt fólk, er meðal víðlesnustu bóka sem komið hafa út á íslensku en hún hefur þegar verið þýdd á ríflega 30 tungumál. Gleðilegt er að greina frá því að boðskapur hennar virðist ekki síður eiga við í dag en áður en það gefa til dæmis vinsældir hennar í Svíþjóð sterklega til kynna. Á dögunum kom út ný sænsk þýðing á verkinu en bókin kom upphaflega út á þar árið 1949 í þýðingu Önnu Z. Osterman en var síðan endurútgefin 1955. Forlagið Leopard gefur út nýju þýðinguna og hefur útgáfan vakið verðskuldaða athygli.

Gagnrýnandi Dagens Nyheter, Ola Larsmo, segir tungumál bókarinnar búa yfir krafti náttúruaflanna.

Kollegi hans á Expressen, Pér Wirtén, fagnar nýju þýðingunni mjög: „Það var komin ullarlykt af þeirri gömlu. Í nýrri þýðingu Inge Knutsson glitrar hún hinsvegar sem bæði fögur saga og hryllileg. Guð minn góður, þvílík saga sem hann skrifaði, Íslendingurinn.“

Og Peter Viktorsson á Kristianstadbladet er hreinlega á því að bókin sé meistaraverk: „Það er sagt að það hvíli bölvun yfir landinu þar sem hann byggir litla bæinn sinn, en ólíkt fólkinu í héraðinu og öðrum á bænum er Bjartur bæði blindur og heyrnarlaus gagnvart slíkri hjátrú. Sagan gerist snemma á 20. öld, á eftir góðum árum koma slæm og hún lýsir baráttu stolts smábónda við að lifa af og verða frjáls. Í svo stuttu máli virðist Sjálfstætt fólk kannski ekki merkileg saga. En eftir nokkurra tíma lestur virðist einkunnin „meistaraverk“ sem þýðandinn Inge Knutsson gefur í eftirmála sínum engar ýkjur, aldrei slíku vant.“

INNskráning

Nýskráning