Þung eftir jólamatinn?

Við finnum líklega öll fyrir því þessa dagana að hafa fengið okkur aðeins of oft og of mikið af hangikjöti og uppstúf, hamborgarhrygg, ís og frómasi. Þá er ágætt að rifja upp holl ráð og leiðbeiningar frá sérfróðum eins og danska heilsu- og næringarráðgjafanum Lene Hansson. Forlagið hefur gefið út bók hennar Léttara og betra líf, átta vikna áætlun þar sem hollmeti og hreyfing vísar veginn til breyttra og bættra lífshátta. Markmiðið er ekki að færa fólki skyndilausn heldur skapa grundvöll fyrir heilbrigðan lífsstíl og léttara og betra líf til frambúðar og Lene hefur hjálpað ótalmörgum til þess.

Við minnum líka á bráðskemmtilega bók Jónínu Leósdóttur, Létti, sem geymir dagbók hennar í heilt ár. Þar segir hún frá aðferðunum sem hún beitir til að léttast, árangrinum sem hún nær og það sem meira er, hún lýsir afar fjölbreyttri umfjöllun um megrun og mataræði sem verður á vegi hennar þessa tólf aðhaldsmánuði. Dagbókin er í senn hvetjandi, fróðleg og fyndin lesning fyrir alla sem einhvern tíma spá í línurnar.

INNskráning

Nýskráning