Internetið segir ýmislegt gáfulegt. Þar kemur til dæmis fram að lestur bóka bæti orðaforðann, auki einbeitingu, örvi ímyndunaraflið, geri þig gáfaðri, áhugaverðari og meira aðlaðandi, dragi úr streitu, bæti minnið, auki sjálfsþekkingu lesenda og skemmti þeim vitanlega á margvíslegan hátt. Það er raunar alveg merkilegt að þú sért ekki að lesa bók akkúrat núna miðað við hversu mannbætandi það er. Fyrir þá sem eru milli bóka mælum við með heimsókn í næstu bókabúð eða bókasafn þar sem yndislegt starfsfólk er boðið og búið að mæla með lesefni við hæfi, nú eða haltu bara áfram hér á netinu og finndu draumabókina hér.