Þekkir þú Ullartásu, Bjálfans barnið, jólasveininn Redda, Hafnarskottu, drauginn Flóalalla, álfadrottninguna Bóthildi, kvendrauginn Hrúgu, Urðarbola, Úríði eða Villa gamla úr Esjunni? Ef ekki skaltu í lifandis hvelli koma höndum yfir uppfærða útgáfu bókarinnar Íslenskt vættatal eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing. Það er nefnilega aldrei að vita á hvern maður rekst á förnum vegi eða villugötum nútímans – vættir leynast um allt land og sumir eru viðskotaverri en aðrir.