Nýjar kiljur

Þrjár splunkunýjar kiljur

Þrjár splunkunýjar kiljur fóru í dreifingu í gær, allar eftir norræna höfunda, einn norskan, einn finnskan og einn danskan!

Finninn – Græðarinn
Antti Tuomainen (f. 1971) gaf árið 2007 út sína fyrstu bók, Að gæta bróður míns, sem fékk mikið lof lesenda og gagnrýnenda. Græðarinn, þriðja skáldsaga hans, var valin besta glæpasagan í Finnlandi 2011 og kemur út í fjölmörgum löndum um þessar mundir. Sigurður Karlsson þýddi.

Daninn – Iðrun
Hanne-Vibeke Holst (f. 1959) hefur skrifað f jölda skáldsagna og er einn vinsælasti rithöfundur Danmerkur. Iðrun er nýjasta verk hennar. Halldóra Jónsdóttir þýddi.

Norsarinn – Boðskapur Lúsífers
Tom Egeland er gjarnan kallaður “höfundur norska Da Vinci lykilsins”. Spennusögur hans hafa hlotið mjög góðar viðtökur og verið þýddar á fjölda tungumála. Boðskapur Lúsífers er sú fjórða sem kemur út á íslensku. Krisín Thorlacius þýddi.

INNskráning

Nýskráning