IBBY á Íslandi hefur tilnefnt þrjá einstaklinga á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY-samtakanna. Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í Mexíkóborg í september 2014, og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim í tvö ár. Tilnefnir hver IBBY-deild einn höfund, einn myndlistarmann og einn þýðanda og í ár koma allar tilnefndu bækurnar frá Íslandi út hjá Forlaginu.
IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People en það eru alþjóðleg samtök sem starfa í 60 ríkjum víðs vegar um heim. Íslandsdeild IBBY var stofnuð 1985 og stendur á hverju ári fyrir margs konar samkomuhaldi, veitir viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar og gefur út tímaritið Börn og menningu.