Thor Vilhjálmsson

Þrír rithöfundar heiðraðir

Í dag veitti Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Hugvísindasvið þremur íslenskum rithöfundum heiðursdoktorsnafnbót við hátíðlega athöfn í Hátíðasal skólans. Þetta voru Álfrún Gunnlaugsdóttir, Matthías Johannessen og Thor Vilhjálmsson. Dr. Dagný Kristjánsdóttir, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stýrði athöfninni en dr. Ástráður Eysteinsson forseti Hugvísindasviðs mælti fyrir gjörningnum.

Athöfnin fór síðan þannig fram að fyrst var lesið úr verkum hvers höfundar fyrir sig, því næst var mælt fyrir doktorsnafnbót viðkomandi höfundar og loks þakkaði hinn nýbakaði doktor fyrir sig. Það var dr. Bergljót Kristjánsdóttir sem mælti fyrir doktorsnafnbót Álfrúnar, dr. Guðni Elísson mælti fyrir doktorsnafnbót Matthíasar og dr. Ásdís Egilsdóttir mælti fyrir doktorsnafnbót Thors. Lauk samkomunni á því að dr. Thor heillaði viðstadda með impróvíseraðri ræðu um samskipti sín og Háskólans gegnum tíðina.

Ljúfur tónlistarflutningur var í höndum Gunnars Gunnarssonar, Tómasar R. Einarssonar og Óskars Guðjónssonar. Var það mál manna að samkoma þessi hefði verið hin ágætasta, fróðleg, uppbyggileg og – það sem kannski var óvæntast – afar skemmtileg.

INNskráning

Nýskráning