Þrautseigjan borgar sig

Rithöfundurinn Judy Blundell hefur átt afar óvenjulegan feril.  Óframfærin og uppburðarlítil hóf hún störf sem íhlaupaskonsa hjá útgefandanum Simon & Shuster og skrifaði þá í laumi. Fyrst fyrir skúffuna síðan undir dulnefni. Hún hefur gefið út hartnær hundrað bækur síðastliðinn 20 ár, m.a. undir nafninu Judy Watson. Þar má á meðal annars telja ófáar fantasíubækur og ráðgátur fyrir yngri lesendur og geimtryllis-frásagnir tengdar Star Wars myndunum (sem mynda heila bókaseríu). Það var þó ekki fyrr en með nýjustu bók hennar, Það sem ég sá og hvernig ég laug, að Blundell var tilbúin að stíga fram undir nafni. Enda vann bókin The National Book Award í Bandaríkjunum og skaut henni varanlega upp á höfundarhiminninn.

Það sem ég sá og hvernig ég laug er komin út á íslensku í þýðingu Magneu J. Matthíasardóttur. Dúndurbók, svo ekki sé meira sagt.

INNskráning

Nýskráning