Þrælar 21. aldarinnar

Út er komin afar áhrifamikil bók sem segir sögu inversku stúlkunnar Bathuk. Hún á að vera að leika sér, læra og stíga fyrstu skrefin út í lífið en lifir þess í stað í búri í götu einni í Mumbai þar sem hún er látin fullnægja kynlífsþörfum ókunnugra karla. Skáldsagan Bláa minnisbókin er skrifuð af lækninum James A. Levine sem starfaði á Indlandi og kynnist þar lífi og hlutskipti götubarna sem af mörgum eru álitin þrælar 21. aldarinnar.  Sagan hefur fengið frábæra dóma, ekki síst fyrir það eitt að falla ekki gildru tilfinningaseminnar – sem svo auðvelt væri miðað við söguefnið. Bláa minnisbókin er saga sem snertir lesendur á djúpstæðan hátt enda vegsamar hún vonina sem finna má þrátt fyrir allt í grimmilegustu samfélögum heimsins.

INNskráning

Nýskráning