Þorsteinn og Eiríkur

Þorsteinn og Eiríkur lofsungnir

Í nýjustu útgáfu Kjarnans fer Þorgeir Tryggvason lofsamlegum orðum um tvær nýlegar ljóðabækur frá Forlaginu: Skessukatla eftir Þorstein frá Hamri og Hnefa eða vitstola orð eftir Eirík Örn Norðdahl.

Í umfjöllun um Skessukatla veltir Þorgeir fyrir sér áhrifamiklum en látlausum ritstíl Þorsteins og segir: „Ég giska á að enginn móðgist þótt ég kalli Þorstein frá Hamri höfuðskáld Íslendinga núlifandi.“

Þorgeir virðist sömuleiðis ánægður með nýja bók Eiríks Arnar sem honum þykir tilraunakennd og uppátækjasömu og segir: „Þetta er æðisleg bók, ort í æðiskasti yfir voðanum í íslensku samfélagi i hruninu miðju. Kannski hefur Eiríkur Örn Norðdahl fundið til skyldleika við ákvæðaskáldin fornu…“

Það er því víst að ljóðið lifir enn góðu lífi!

Hér má lesa dómana í heild sinni

INNskráning

Nýskráning