Ný ljóðabók Þorsteins frá Hamri hefur fengið glæsilega dóma þar sem djúp virðing fyrir skáldinu er auðsjáanleg. Friðrika Benónýsdóttir á Fréttablaðinu gefur bókinni Allt kom það nær fullt hús stjarna og lýsir hug sínum best með orðunum:„Getur fullkomnun orðið fullkomnari?“
Í bókinni má finna hárbeitta samfélagsgagnrýni þar sem Þorsteinn beitir penna sínum á undurfagran en þó hvassan hátt. Þorsteinn talar í einlægni um vonina sem vermir, um drauminn, fegurðina, um fortíð og samtíð, um það sem getur breytt lífi okkar á skammri stundu og fyrirvaralaust. Bókin rímar vel við hugðarefni fólks í samtímanum og á fullt erindi við fólk á öllum aldri.